RaggagarðurbloggRaggagardur á facebookStyrktaraðilarGreinagerðir og önnur skjölStyrktu okkurVídeóGisting í SúðavíkHafðu sambandEnglish
Reglur Raggagarðs
Staðsetning Raggagarðs
Leiktækin
Við þörfnumst þinnar hjálpar
Reglur Raggagarðs
Færslur úr Gestabók

Ágætu gestir.

Raggagarður er einkaframtak og öll vinnan í garðinum er unnin í sjálfboðavinnu heimamanna og annara.  

Við sem stöndum að gerð þessa garðs viljum biðja ykkur um að taka tillit til eftirfarandi atriða:

•    Gestir Raggagarðs eru algerlega á eigin ábyrgð meðan á dvöl stendur.

•    Vinsamlega takið tillit til sumargesta og hafið ekki hávaða eftir
      Kl. 22:00 á kvöldin.

•    Neysla áfengis er stranglega bönnuð í Raggagarði.

•    Skiljið ekki börn (undir 10 ára aldri) eftir eftirlitslaus í garðinum.

•    Gætið þess að ganga ekki í trjábeðum og að börn klifri ekki í trjánum sem fyrir eru (trén þola það ekki).

•    Gangið ávallt vel um leiktækin og allan garðinn og setjið rusl í þar til gerðar ruslatunnur.

•    Vinsamlega styttið ykkur ekki leið með því að fara yfir böndin sem sett voru upp til að hlífa nýjum plöntum og til að afmarka garðinn.

•    Hundaeigendur verða að hreinsa upp eftir hunda sína.

•    Bannað er að kveikja eld í garðinum nema í grillkolum í grillunum.  Ekki brenna í grillunum annað en grillkol.
 

Með von um að þið eigið ánægjulegar stundir í Raggagarði í sumar.
Með vinsemd og virðingu.
Vilborg Arnarsdóttir