RaggagarðurbloggRaggagardur á facebookStyrktaraðilarGreinagerðir og önnur skjölStyrktu okkurVídeóGisting í SúðavíkHafðu sambandEnglish
Leiktækin
Staðsetning Raggagarðs
Leiktækin
Við þörfnumst þinnar hjálpar
Reglur Raggagarðs
Færslur úr Gestabók

Bookmark and Share

Aparóla /Aerila runway

Aparólan er alltaf vinsæl
 
Aparólan er fyrsta leiktækið sem pantað var í Raggagarð vorið 2004.  Pokasjóður Verslunarinnar styrkti Raggagarð um 1 milljón króna þetta árið og því voru fleiri leiktæki keypt.  Aparólan er mjög vinsælt leiktæki fyrir 6 ára börn og eldri.  Hún var sett upp í hæstu leyfilega stöðu og rennur því hratt.  Ekki er leyfilegt að ýta á þann sem er að renna sér.  Alls ekki vera tveir í einu í sætinu og ekki standa. Slíkt getur valdið slysum.


Róla / Swing Frame

Vilborg og Þórir Garibaldi sonur Vilborgar róla sér.

Róla fyrir 2 er staðsett á neðra svæðinu.  Hún er ætluð fyrir börn 1 árs og uppúr. Félag Íslenskra hljómlistarmanna styrktu Raggagarð um róluna árið 2005.


Hringekja / Crousel

Mynd tekin 6 ágúst 2005.

Hringekja var keypt 2005.  Kennarasamband Íslands styrkti garðinn til að kaupa þetta leiktæki.  Það er staðsett á neðra svæðinu í Raggagarði.  Leiktækið er ætlað 2-4 ára börnum og eldri.


Heilsuræktartæki / Sport group


Sport Group í Orkulundinum

Heilsuræktartækið Sport Group er staðsett á efra svæðinu í lundi sem hefur fengið nafnið Orkulundurinn.  Orkan Bensín styrkti Raggagarð árið 2005 um tækið og einnig trjágróðurinn umhverfis Orkulundinn.  Tækið er ætlað öllum aldurshópum til þjálfunar í líkamsrækt en jafnframt leiktæki fyrir alla í fjölskyldunni til að spreyta sig á.  Það er til dæmis gott fyrir skokkara að enda skokkið í Orkulundinum og taka nokkrar teygjur og magaæfingar.


Sveiflustaur / Rock´n´roll

 
Sveiflustaurinn er á efra svæðinu sem ætlað er börnum 8 ára og eldri.  Þetta tæki er ætlað 12 ára og eldri.  Það þurfa að vera tveir saman, svipað þungir, til að ná góðri sveiflu í tækinu.  Þetta tæki sveiflast í hringi en líka er hægt að setjast ofaná sætið og njóta útsýnis og halda jafnvægi í leiðinni.  Félag Álftfirðinga- og Seyðfirðinga Vestra styrktu garðinn um þetta tæki árið 2005.
 
Twist

Mynd tekin í Raggagarði

Twist er leiktæki fyrir 12 ára og eldri.  Fjórir einstaklingar geta sveiflað sér saman í þessu tæki. Hægt er að ná ágætum snúningi í þessu tæki.  Leiktækið var keypt árið 2005.

Vegasalt

4ra manna vegasalt

Vegasalt fyrir fjóra er á neðra svæðinu fyrir yngri börnin.  Vegasaltið er ætlað börnum 3 ára og eldri.  Vegasaltið var keypt 2004.  Skemmtilegt tæki sem allir í fjölskyldunni geta verið saman í.


Kastali

Nýi kastalinn fyrir 8 ára og eldri

Þetta er nýi Kastalinn sem var keyptur vorið 2007.  Pokasjóður og Súðavíkurhreppur styrktu kaupin á þessu leiktæki.  Þetta leiktæki er á efra svæðinu og er ætlað börnum 8 ára og eldri.

Klifurgrind

Leikskólaklifurgrindin

Þessi Klifurgrind var á lóð leikskólans við Höfðabrekku.  Búið er að mála hana að nýju og setja upp á neðra svæðinu sem ætlað er börnum 1-10 ára.  Klifurgrindin var sett upp 2005.


Járnbrautalest
Nú er komin í garðinn Járnbrautalest fyrir yngstu börnin 1-10 ára. Pokasjóður Verslunarinnar styrkti kaupin á þessari lest sem keypt var sumarið 2007.


Rugguhestur / Horse

  
 
Rugguhestur var keyptur síðsumars 2008 og verður settur upp í garðinum vorið 2009. Rugguhesturinn verður á neðra svæðinu og er ætlaður 2 til 8 ára börnum.

Gíraffi / Giraffe
 
 
Ruggugíraffi var keyptur síðsumar 2008 og verður settur í garðinn vorið 2009. Gíraffin er ætlaður fyrir 2-8 ára börn og verður á neðra svæði Raggagarðs.

Snúningssæti / Tango
 

Leiktækið var keypt síðsumar 2008 og verður sett í garðinn vorið 2009. Leiktækið er 2 sæti sem snúast í hringi. Leiktækið verður á efta leiksvæðinu og er ætlað börnum 6 ára og eldri.


Snúningsveifla / Waltz with Speed Restricder
 
 
Keypt síðsumar 2008 og verður sett á efra svæði garðsins vorið 2009. Það er ætlað fyrir börn 6 til 99 ára aldur. Flott tæki fyrir alla fjölskylduna. Fer bæði upp og niður og vaggar. Hætta er á að fólk verði pínulítið ringlað í þessu tæki ef því er snúið hratt.