RaggagarðurbloggRaggagardur á facebookStyrktaraðilarGreinagerðir og önnur skjölStyrktu okkurVídeóGisting í SúðavíkHafðu sambandEnglish
blogg
maí, 2010
júní, 2010
júlí, 2010
RSS
Afmæli Raggagarðs
29/7/2010 10:17:32 AM
Fjölskyldudagur af tilefni 5 ára afmæli garðsins.


Raggagarður á 5 ára afmæli þann 6. ágúst verður því haldinn fjölskyldudagur í garðinum laugardaginn 7. ágúst kl: 15.00. Nokkrir góðir gestir munu heimsækja garðinn af tilefni dagsins og taka nokkur  lög fyrir afmælisbarnið og gesti garðsins. Heitt verður í kolunum á stóra grillinu og því tilvalið að koma með nestiskörfuna og setja á grillið með fjölskyldunni.


Meðal gesta sem koma fram eru:
Kjartan Sigurjónsson  Súðavík. / Flytur ávarp og spilar á harmonikku.
Mugison. / Gítar og söngur
Eggert og Michelle Nielson Súðavík. / Gítar og söngur
Guðmundur Hjaltason Trúbador Ísafirði. / Gítar og söngur


Þeir sem hafa áhuga á að eignast glös eða staup með merki garðsins geta keypt þau í garðinum þennan dag. Með því eignast þú kemmtilegan minjagrip og styrkir garðinn í leiðinni.

Þar sem afmælið er haldið utandyra þá þarf að hafa það í huga að ef ekki viðrar vel á laugardeginum þá gæti þurft að færa afmælið fram til sunnudags.

Við hvetjum alla til að koma í Fjölskyldugarð Vestfjarða og eiga skemmtilega stund saman. Hægt er að fylgjast með tilkynningum á
facebook síðu garðsins.


Styrkir
29/7/2010 10:01:22 AM

 
Starfsmannafélag Hraðfrystihúss Gunnvarar var með fjölskyldudag í Raggagarði þann 10. júlí.  Af því tilefni gaf Hraðfrystihúsið gjafabréf upp á 250.000 kr.

 
Þann 15. júlí var styrkjum úthlutað úr Pokasjóði í nauthólsvíkinni í Reykjavík.  Að þessu sinni var það Sigrún María Gísladóttir frá Grund Súðavík sem tók á móti styrknum fyrir hönd Raggagarðs.

Stjórn Raggagarðs vill koma á framfæri kæru þakklæti bæði til stafsmannafélagsins H.G í Hnífsdal og Fyrirtækisins H.G   ásamt Pokasjóði sem hefur verið dyggasti stuðningsaðili garðsins til þessa.

Dansleikur með The Melonheads
10/6/2010 11:37:56 AM
Dansleikur í Edinborg
Ísafirði
26 júní 2010. kl: 23.00
 
 
Chris Veatch Trommur- Eggert Nielson gítar  -Steve Lampa-gítar
 Michelle Nielson söngur og gítar.- Cal Allendorfer- bassa gítar – Bob Barnett-gítar, hljóborð og bakraddir Alex Keating- hljóðmaður.

Sérstakur gestur kemur líka fram sem er Tom Johnson- mandolin, guitar, bass guitar, keyboards and vocals

Frábær danstónlist fyrir alla aldurshópa.   

Hljómsveitin kemur alla leið frá Virginíu í Bandaríkjunum til að halda dansleik til styrktar Raggagarði, Fjölskyldugarði Vestfjarða.    Miðaverð er 2000 kr  18 ára aldurstakmark

Ekki missa af frábærum dansleik sem aðeins verður haldin í þetta eins skipti á íslandi með þessari frábæru hljómsveit.

        

Júlíus Ólafsson gerir skilti fyrir Raggagarð.
1/6/2010 2:58:20 PM

Í gærkveldi afhenti fyrrum Súðvíkingurinn Júlíus Ólafsson á Ísafirði Raggagarði 11 skilti, sem hann hefur fræst  nöfn stærstu styrktaraðila garðsins á.  Tréð er keypt frá skógrækt Ríkisins í Hallormstaðarskógi.  Júlíus gaf Raggagarði alla vinnuna við að fræsa út stafina í skiltin til minningar um Ragnar Frey en þeir kynntust þegar Júlli var með unglingadeildina í Björgunarsveitinni í Súðavík.  Gjöf til garðsins til minningar um góðan dreng, eins og Júlli orðaði það. 

Við færum Júlla hjartans þakkir fyrir styrkinn til Raggagarðs og er ætlunin að skiltin komin upp í garðinn 25 júní næstkomandi.  

Þeir sem vilja láta gera fyrir sig skilti af öllum gerðum og stærðum geta hringt í Júllatré í síma 8670372
 

Stutt í vorið
31/5/2010 7:42:56 PM


Nú styttist óðum í vorið og framkvæmdir geta hafist í garðinum. Ekki verður framkvæmt mikið í ár vegna fjárskorts en þó eru nokkur verkefni sem verða kláruð í sumar. Stefnt er að setja upp álftirnar sem hlið í garðinn 13 júní. Fleiri mottur verða settar í kringum kastalann og jarðvegsgirðing sett upp á efra svæðinu svo eitthvað er nefnt. Vonandi fáum við heimsókn leik og grunnskólabarna á Vestfjörðum í vor. Okkur vantar aðstoð á vinnudögum í sumar og vonum við að starfsmannafélög eða félagsamtök taki sig saman og bjóði garðinum aðstoð sína með því að senda okkur tölvupóst. Þeir hópar sem hafa komið hafa haft mikla ánægju af því að koma og hjálpa til, njóta samveruna saman og fá kaffi og kleinur að launum.

 

Nýbakaðar kleinur til sölu í Samkomuhúsi Súðavíkur í dag 4. april.
31/5/2010 7:42:30 PM


Nýbakaðar ilmandi kleinur og kaffi verða til sölu á myndlistarsýningu siggu Maju í Samkomuhúsi Súðavíkur í dag frá kl:14.00 til 17.00 í dag. Endilega komið og sjáið málverk eftir Siggu Maju og njótið þess að fá nýbakaðar kleinur í leiðinni. Kaffið og kleinurnar er fjáröflun fyrir Fjölskyldugarð Vestfjarða.

Askur og Embla á tjörninni á Langeyri
31/5/2010 7:41:03 PM

Í dag sást til Álftarpara á tjörninni á Langeyri í Súðavík. Teljum við að þarna séu á ferðinni Askur og Embla hafa ákveðið að taka sér bólfestu í Raggagarði. Voru þau hjónakornin að taka sér smá sundsprett þar sem tjörnin er ófrosin að hluta og nutu góða veðursins. Það er sannarlega vorlegt að sjá fuglana spóka sig á tjörninni í þessari vorblíðu.

 

Stefnt á að halda upp á 5 ára afmæli Raggagarðs í byrjun ágúst.
31/5/2010 7:40:18 PM

Raggagarður Verður 5 ára þann 6 ágúst í ár og að tilefni afmælisins er stefnt að því að halda fjölskylduhátíð í garðinum 6-8 ágúst í sumar. Vonumst við eftir því að geta verið með skemmtilega dagskrá fyrir börn og unglinga að tilefni dagsins. Þau félög fyrirtæki sem áhuga á því að vera með í afmælishátíðinni að hafa samband við framkvæmdastjóra garðsins. Einnig væri gaman að heyra í fólk um hugmyndir um efni í dagskrá. Að gefnu tilefni vil ég taka það fram að ekki verða birtar athugasemdir við blog nema gefið sé upp nafn og heimilisfang.

Margir spyrja hvernig hægt sé að halda svona starfsemi gangandi?
31/5/2010 7:37:48 PM


Á bak við garðinn er áhugamannafélag um gerð garðsins og fundar 2-4 sinnum á ári. Raggagarður hefur engar fastar tekjur enda ekki selt inn í Raggagarð enda var það aldrei markmiðið. En allt kostar sitt og garðurinn hefur samt föst gjöld til að greiða. Þar má nefna mánaðarlega áskrift af heimasíðunni sem er 87.432 kr á ári. Heilbrigðisgjald til Súðavíkurhrepps rúmlega 18.000 kr, tryggingar á leiktækjunum og nú síðast erum við farin að borga rúmlega 2000 kr pr mánuði í rafmagn fyrir litla salernishúsið auk þess að kaupa salernispappír og handþurrkur á salernið í garðinum. En til að upplýsa fólk um stöðu mála hef ég séð fyrir þessum fasta kostnaði garðsins, svo ekki þurfi að taka af styrktarfé, né gjöfum til garðsins, með því að steikja kleinur upp í þennan kostnað. Ekki veitir af á þessum tímum sem erfitt er að fá styrki. Ekki er mikill afgangs tími til baksturs eftir fullan vinnudag virka daga og því eru nýttar helgarnar eða kvöldstundir í kleinubaksturinn. Árið 2009 var innkoman af kleinubakstrinum 317.000 kr sem er 264 kg af kleinum. Það tekur 114 tíma eða tæpar 3 vikur að baka þessi kíló ef staðið er við pottana í 40 tíma í viku. Búið er að steikja um 3 tonn af kleinum fyrir garðinn frá upphafi en það tekur um 60 mín að steikja 2 kg af kleinum fyrir utan frágang eftir bakstur. Sem sagt búið að steikja í 37,5 vikur (40 stundir per vinnuviku). Er sem sagt búin að steikja í 10 mánuði fyrir garðinn. Þá er ekki talið með baksturinn fyrir vinnudaga og slíkt. Hér til hliðar sést þegar verið er að baka kleinurnar sem hafa keppt þrisvar sinnum á Sæluhelgi á Suðureyri um bestu kleinuna og unnið öll skiptin. Það skal tekið fram að síðustu 2 árin verið minni tími til baksturs og því eru aðeins örfáir sem hafa fengið kleinur.
9 liðir í heild