F j ö l s k y l d u g a r ð u r V e s t f j a r ð a
S ú ð a v í k
Opnaður 6. ágúst 2005
Upphaf fjölskyldugarðsins.
Frumkvöðull að þessum garði er formaður og framkvæmdastjóri áhuga-mannafélagsins um garðinn, Vilborg Arnarsdóttir ( Bogga í Súðavík )
Hún hafði lengi gengið með þá hugmynd að reisa sumarleiksvæði sem ætlað væri til að auka fjölbreytni í afþreyingu fyrir fjölskyldur á norðanverðum Vestfjörðum.
Markmiðið með garðinum er að hlúa að fjölskyldum og efla útiveru og hreyfingu og um leið stuðla að ánægjulegri samveru foreldra og barna. Að halda áfram uppbyggingu Súðavíkur sem ferðamannabæjar og efla afþreyingu fyrir ferðamenn á Vestfjörðum.
Súðavíkurhreppur lagði til lóðina. Heimamenn, sumarbúar, gestir og fjöldi velunnara garðsins á öllum aldri ásamt styrktaraðilum hafa látið þennan draum rætast. Fleiri hundruð klukkustundir hafa verið unnar í sjálfboðavinnu af velunnurum. Allir hafa unnið af alúð og umhyggju við verkið frá upphafi með ýmsu móti. Sumarið 2010 fögnum við öll fimm ára afmæli garðsins og njótum.
Hugsjónin varðandi garðinn og nafn hans.
Nafnið á garðinum er tilkomið vegna þess að Bogga, frumkvöðull félagsins fór af stað með þetta verkefni og vinnuframlag sitt til minningar um son sinn Ragnar Frey Vestfjörð sem lést í bílslysi í Súðavík 17 ára gamall, árið 2001.
Garðurinn er vettvangur fyrir ánægjulegar samverustundir með börnum okkar og barnabörnum, þar sem öll fjölskyldan getur glaðst saman. Gleðilegur vettvangur til að hugleiða út á hvað lífið gengur eða hvað sé okkur dýrmætast í lífinu hjá hverjum þeim sem heimsækir garðinn.
Félagið Raggagarður.
Tilgangur félagsins er að standa að gerð, framkvæmd og rekstri garðsins.